Dandy Warhols eru ekki að spila þegar við erum út eins og ég hélt.
Miðasala hefst næsta fös. á báða tónleika. Býst við að þeir seljist hratt.
Er þetta eitthvað sem fólki líst á? Einhverjar aðrar tónleikapælingar? Maður verður að tékka á flottum tónleikum ef maður er að fara til New York á annað borð. Ha, krakkar ha? (blikk, blikk)
Hvernig líst ykkur á að hafa brunch á sunnudaginn 10.ágúst? Eigum við að segja kl. 11:00..... og þar sem það er orðið rosa stutt í NY þá þyrftum við að taka smá snúning á dagskránni fyrir ferðina, sérstaklega ef við ætlum að panta borð eða eitthvað álíka þá eru bara 6 vikur þangað til við förum og það er ekki langur tími ......... OMG OMG OMG...... shitsen blitsen.......
Endilega látið vita hvað ykkur finnst..... ég vil helst hafa þetta í heimahúsi...... held að við getum jafnvel boðið ykkur til okkar (ef ég verð ekki að vinna;) ).
Mér reiknast svo til að við verðum 12 í mat á föstudagskvöldið, 13 með Elvari: Kat+Stein, She+Kris+Elvar, Siggi+Jóní, Rikk+Óli, Hlín, Dan, Stef, Ásdís. Þannig að pullur og börger fyrir tylft manna.
Á laugardagskvöldinu verður eitthvað færra í kotinu: Ásdís að fara í brúðkaup ekki satt... og Siggi og Jónína með my little pony eru kannski að undirbúa skírn eða hvað?... Þannig að pottþétt 9 manns í læri og kannski 11 ef hinir nýbökuðu foreldrar eru líka.
Big Fat innkaupaferð á morgun :)
Ég ætla að kippa með tómatsósu og sinnepi, Ríkey ætlar líka að kippa einhverju slíku með... ef þið eigið í ísskápnum sósur/steiktan lauk og eitthvað þannig sem þarf að klára í sumar þá væri kannski sniðugt að bomba því í bústaðinn :)
DÍÍÍÍÍÍÍÍ hvað ég get ekki beðið eftir þessari helgi :D :D :D
Ég er alveg byrjuð að skipuleggja á skrilljón, komin með dagskrána í möppu með litaspjöldum þar sem fremst má líta contact aðila fyrir næstu helgi. Ef þið hafið áhuga á að nálgast þessa möppu er ykkur bent á að hafa samband við Ljósritunardeild Ríkisins sem reddar ykkur eintaki. Í möppunni góðu má einnig sjá innkaupalista en ef ég man rétt þá hef ég boðist til þess að fara í matarinnkaup fyrir hópinn þar sem ég er á lausu á föstudaginn. Mér skildist að Danni sé líka í fríi og hann er tilbúinn til að fara með mér í búðina. Ef það eru fleiri sem vilja endilega fara í búðina þá er ekkert því til fyrirstöðu að skrá sig á biðlista og ég hringi í þá aðila ef annað hvort ég eða Danni forföllumst ;)
En nóg af bulli... hér gefur að líta grófan innkaupalista (þó ekki þannig að þið farið hjá ykkur), ef einhverjar óskir eru þá setjið þær í komment og við reddum því sem þið viljið :)
Föstudagur: Pullur á grillið? (eða börger?) og meðlæti Laugardagur: brauð, álegg, jógúrt+fleira morgunmats, ávextir, kaffi, kex, læri í kvöldmat, kartöflur+fleira meðlætis Sunnudagur: morgunmats/bröns/kaffi Að auki ku vera nauðsyn að hafa snakk, gos, sælgæti og sitthvað fleira...
Jæja þá er nóg komið af slóri og kominn tími til að TMC haldi áfram að hlaupa. Hittumst á morgun í Laugardalnum, við andyrið á lauginni kl. 17:30. Hlaupið verður í ca.30 mín, hver á sínum hraða. Síðan eru Mullers æfingar og aðrar teygjur í boði Óla og Stebba. Að því loknu verður hleypt ofan í pottana, síðan er frjálst.
Ég er komin til landsins...reyndar er vika síðan en hún telst varla með því ég er nánast búin að vera sofandi síðan ég lenti sökum flugþreytu.
Allavega, mig langar alveg ROSALEGA að hitta ykkur öll. Er einhver stemmning að fara á Vegamót í kvöld? Mig langar svo rosalega í kjúklinga burrito, ég er búin að láta mig dreyma um það í næstum því ár.