mánudagur, júlí 28, 2008

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JÓNÍNA!

MEGIR ÞÚ LENGI LIFA, HÚRRA ... HÚRRA ... HÚRRA ... HÚRRA! :)



fimmtudagur, júlí 17, 2008

TOMORROW... TOMORROW...

Ég er aðeins að reyna að summera þetta upp:

Mér reiknast svo til að við verðum 12 í mat á föstudagskvöldið, 13 með Elvari: Kat+Stein, She+Kris+Elvar, Siggi+Jóní, Rikk+Óli, Hlín, Dan, Stef, Ásdís. Þannig að pullur og börger fyrir tylft manna.

Á laugardagskvöldinu verður eitthvað færra í kotinu: Ásdís að fara í brúðkaup ekki satt... og Siggi og Jónína með my little pony eru kannski að undirbúa skírn eða hvað?... Þannig að pottþétt 9 manns í læri og kannski 11 ef hinir nýbökuðu foreldrar eru líka.

Big Fat innkaupaferð á morgun :)

Ég ætla að kippa með tómatsósu og sinnepi, Ríkey ætlar líka að kippa einhverju slíku með... ef þið eigið í ísskápnum sósur/steiktan lauk og eitthvað þannig sem þarf að klára í sumar þá væri kannski sniðugt að bomba því í bústaðinn :)

DÍÍÍÍÍÍÍÍ hvað ég get ekki beðið eftir þessari helgi :D :D :D



mánudagur, júlí 14, 2008

Nú líður að The Great TMC Weekend!!

Eru ekki allir í stuði?!

Ég er alveg byrjuð að skipuleggja á skrilljón, komin með dagskrána í möppu með litaspjöldum þar sem fremst má líta contact aðila fyrir næstu helgi. Ef þið hafið áhuga á að nálgast þessa möppu er ykkur bent á að hafa samband við Ljósritunardeild Ríkisins sem reddar ykkur eintaki. Í möppunni góðu má einnig sjá innkaupalista en ef ég man rétt þá hef ég boðist til þess að fara í matarinnkaup fyrir hópinn þar sem ég er á lausu á föstudaginn. Mér skildist að Danni sé líka í fríi og hann er tilbúinn til að fara með mér í búðina. Ef það eru fleiri sem vilja endilega fara í búðina þá er ekkert því til fyrirstöðu að skrá sig á biðlista og ég hringi í þá aðila ef annað hvort ég eða Danni forföllumst ;)

En nóg af bulli... hér gefur að líta grófan innkaupalista (þó ekki þannig að þið farið hjá ykkur), ef einhverjar óskir eru þá setjið þær í komment og við reddum því sem þið viljið :)

Föstudagur: Pullur á grillið? (eða börger?) og meðlæti
Laugardagur: brauð, álegg, jógúrt+fleira morgunmats, ávextir, kaffi, kex, læri í kvöldmat, kartöflur+fleira meðlætis
Sunnudagur: morgunmats/bröns/kaffi
Að auki ku vera nauðsyn að hafa snakk, gos, sælgæti og sitthvað fleira...

Hvað verðum við mörg?