fimmtudagur, júlí 29, 2004

Jæja hvert á að fara í hádeginu????????
E-ð krassandi, þaggi ;)



þriðjudagur, júlí 27, 2004

Já ég vissi allan tímann að Ríkey og Óli ættu eftir að komast í sviðsljósið.... en hvenær eigum við að taka feitt djamm öll saman????? kannski við bíðum með það eftir sumarpróf, held það sé skynsamlegt en mig lahangar svo að djhaammma með ykkur... uhuhuuu.............. Nefnið dagsetningu og ég skal halda partý ok? Gætum grillað allir saman o.s.frv. Ég á bjór heima, kannski ég byrji bara í kvöld hehehehehe :O) 



föstudagur, júlí 23, 2004

Ríkey og Óli eru hér úti um allt á Vegamótum! Þvílík celeb ;)



fimmtudagur, júlí 22, 2004

Jæja göngugarpar og aðrir, ekki svo miklir garpar!
Er það lunch í hádeginu í dag?
Komið þá með góðar hugmyndir af stað til að hittast á í kommentin!

kærlig hilsen



sunnudagur, júlí 18, 2004

Hvað segið þið börnin min, lifðuð þið af ævintýrið???



fimmtudagur, júlí 15, 2004

Helgarveðrið:
Hæg norðlæg átt. Dálítil væta öðru hverju við norðustur- og austurströndina, en annars víða bjartviðri. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.

Vei, vei. Guð er til.



miðvikudagur, júlí 14, 2004

hæ hó er þessi fundur sem búið var að plana í kvöld? eða er kannski engin þörf fyrir hann, liggur þetta ekki nokkuð ljóst fyrir? bara smá pæling með nesti var eitthvað verið að hugsa um að hafa eitthvað sameiginlegt nesti? því eins og ég skil þetta þá kostar hver "pakki" í þórsmörk 1000 kr (svefnpoki-tjald-kælibox.......) eða er þetta 1000 kr á mann? væri fínnt að reyna að hafa einvhern hitting í köld! hvert er palið með þessa æfingargöngu? - - - - jæja reynum að búa til eitthvað vesen ok bæ!



þriðjudagur, júlí 13, 2004

Hér er listinn sem er á utivist.is en það vantar VÍNIÐ þar inná, skrýtið??!!:
Gönguskór
Göngusokkar (gott er að vera í tvennum pörum, einum þykkum og öðrum þunnum)
Auka sokkar
Legghlífar
Húfa
Vettlingar
Göngubuxur
Peysa (ull eða flís)
Nærföt úr ull eða ullarblöndu
Auka peysa
Vatns- og vindheldur hlífðarklæðnaður

Ath. að láta í einn pakka það sem á að senda í Bása, svo sem grillmat og kol, hrein föt, handklæði og 100 kr. í sturtuna. Það kostar 200 kr. að senda hvern pakka umfram einn.



mánudagur, júlí 12, 2004

hello my kittens!!
planið fyrir næstu helgi...

Laugardagur: mæta fyrir kl.8 á BSÍ, kaupa miða í rútu á Skóga (kr.2500) og miða í rútu frá Básum (kr.3500) merkja vel farangurinn sinn sem á að fara í Bása og setja í pakkaflutninga (kr.u.þ.b.1000)

Rútan leggur svo af stað kl.8.30 á Skóga og erum við komin þangað um 3 tímum síðar. Sniðugt væri að fá sér smá snarl á Skógum og hefja svo gönguna miklu. Komið í Bása um kvöldið og grillað og djammað og djúsað....

Sunnudagur: sofið út og gengið heim!!!! (rúta frá Básum kl.14)

á heimasíðunni utivist.is er hægt að skoða gátlista fyrir ferðina, matur, farangur, föt o.s.frv.
Endilega takið með ykkur pening í sturtuna (held 100kr.)



sunnudagur, júlí 11, 2004

Jæja----úff mikið af bjórflöskum eftir partý----og bjórlykt í húsinu...
en jáh mikið rosanlega lýst mér vel á þessa ferð sem við erum að fara í, vona það besta með veður..... en eru ekki allir hressir annars ? ----
yfir og út ---óli



fimmtudagur, júlí 08, 2004

Halló---bara að byrja á því að bjóða ykkur öllum í partý á laugardaginn! núna þegar maður er búinn að eyða einni helgi með ykkur (þ.e. þeim sem voru í þrastarlundi um síðustu helgi) þá get ég ekki hætt. Því ég er neflinlega orðinn rafvirki og ætla að halda uppá það með smá gleðskap!--- og þá er alveg tilvalið að fjárfesta í gönguskóm og dansa þá til í partýinu.

--en hvað hina helgina varðar þá líst mér alveg rosanlega vel á gönguna, held að það væri alveg frábær skemmtun, sem raftingið er eflaust líka, en þar sme hún rikka littla er með kuldaofnæmi (nenni ekki að útskýra) og þar af leiðandi held ég að jökulvatnið geri ekki góða hluti.

--En hvað gönguskó varðar, þegar ég keypti mér mína skó, þá var ég að fara að veiða rjúpu í vikunni á eftir þannig að ég einfaldlega gekk tvö kvöld upp á esjuna og fann ekki fyrir neinum óþægindum þegar maður gekk heilan dag og og niður eitthvað fjall!! málið er bara að vera í góðum sokkum og svo frammvegis!!!! jæja
-----later---

-jæja sjáumst í kvöld!! er ekki annars fundur?



Vá, langt síðan að maður hefur skrifað eitthvað hér!!!
Allavega varðandi þarnæstu helgi þá eru möguleikarnir þessir:

i) Taka rútu á Skóga á föstudeginum og gista þar eina nótt og ganga svo yfir Fimmvörðuhálsinn á laugardeginum og gista 1 nótt í Þórsmörk (kostar um 10000).
Kostir: Fallegt svæði að ganga, hópurinn kemst í betra form!
Gallar: Veður alltaf áhætta, erfitt(sviti)!

ii) River rafting á laugardeginum annaðhvort í Skagafirði (á 7800) eða í Þjórsá (á 4900, sem er með 1000 kr. afslætti) og tjalda svo e-r staðar.
Kostir: Örugglega frábært að prófa, ódýrara en gangan
Gallar: Veður (þó minni faktor en í göngunni), hættulegt!

Persónulega finnst mér soldið dýrt að borga um 10000 fyrir gönguna því að það á eftir að borga mat og vín, einnig er ég líka í gönguskó-vandræðum! En á móti kemur að bensínpeningur bætist við riverrafting!



þriðjudagur, júlí 06, 2004

jæja krakkar mínir! Steinar kemst ekki með í gönguna miklu, hann er að fara að vinna á laugardagskvöldinu. Eru einhverjir fleiri á mörkunum??
Ég satt best að segja get ekki sagt að ég sé í geðveiku gönguformi og var að heyra að fyrir lofthrædda er þetta hin mesta hættuför (ég skít á mig á 2.hæð í Kringlunni!!) Hvað finnst ykkur um að fara í river rafting í staðinn?? Öll saman, blaut og köld?? Ég veit ég er glötuð en er bara aðeins að gugna á öllu þessu labbi tali :O( og ég á ekki gönguskó :O( uhuhuuuuuuu



mánudagur, júlí 05, 2004

jæja krakkar!!! ég var að spá með þessa gönguferð... nú á ég ekki gönguskó og ekki Steinar heldur og ég held að það sé ekki sniðugt að ganga á nýjum skóm eða fá lánaða. Hvað leggið þið til? Eru fleiri í sömu stöðu og við? Endilega látið heyra í ykkur veríverísúúúúúún :o)



fimmtudagur, júlí 01, 2004

Ég er sammála Ríkey að við eigum að nota þessa síðu í auknum mæli til að skiptast á skoðunum á hádegisverðarstöðum og öðrum viðburðum hins merka klúbbs TMC. Heyr heyr Richy!!!

Mér líst vel á Salatbar Eika í dag og var jafnvel að vonast til þess að geta fengið far með Danna þangað???

Svo er ég orðin ógurlega spennt fyrir gönguferðinni miklu en verð reyndar að játa að næstum allar mínar stóru fyrirætlanir frá því í gær runnu út í sandinn og urðu að engu :(
Þannig klikkuðu gönguskókaupin í hádeginu í gær, þ.a.l. komst ég ekki í Glymsgönguna í gærkvöldi og fór þess í stað í hálfgert jóga til að jafna mig á áfallinu. En planið um að kanna aðstæður í Þórsmörk stendur enn eins og klettur í hafinu og einnig planið um Austurlandsferðina. Reyndar var haugalygi að ég ætlaði að labba heim en það er annað mál...

Kveðja,
Ásdís planglaða