sunnudagur, apríl 22, 2007

Jæja krakkar mínir....

Var enda við að tala við Sigga og við vorum í einvherjum vafa hvaða helgi hafi verið ákveðin í júlí fyrir hina árlegu TMC ferð. Hvort er 21-22. júlí eða 28-29. júlí málið??

Að öðru leyti er allt fínt að frétta af mér hér í bílabænum Tröllahettunni. Hingað til hefur nú ekki verið neinn stórborgarbragur yfir kúltúrlífinu hér en á síðustu vikum hefur allt lifnað við til hins betra með hækkandi sól. Held það sé spáð 20 stigum og sól á morgun. Verkefnið gengur fínt og stefnan er að klára 30. júní. Eftir það er ég að pæla að rúlla suður og kíkja á hróarskelduna á "heimleiðinni" ;) Býst svo við að vera á klakanum ca. 10 júlí.

Ég vona að þið hafið það gott :)



mánudagur, apríl 09, 2007

Hún átti afmæli í gær,
Hún átti afmæli í gær,
Hún átti afmæli hún Ríkey,
Hún átti afmæli í gær.....

Til hamingju með afmælið í gær Ríkey - Hún lengi lifi húrra húrra húrra:)