miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Hvernig líst ykkur á að hafa brunch núna á sunnudaginn, 2.des???? Helgina eftir það eru Siggi og Jónína í udlandet og svo er farið að nálgast jólin ansi mikið eftir það........ eða hvað segiði....... gætum reynt að negla niður dagsetningar fyrir NYC............



mánudagur, nóvember 12, 2007

TMC IN NYC?

Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir samveruna á sunnudaginn fallega fólk! Loksins náðum við (eða hluti af okkur) að hittast.

Við vorum að ræða TMC-NYC ferð... hvernig líst ykkur á New York í september á næsta ári? Eins gott að Dísa&Dodds búi ennþá þar því þetta verður skemmtilegasta heimsókn sem þau hafa fengið frá upphafi! En ég er samt ekki að meina að allir hrúgist í kotið þeirra D&D, hægt að bóka gistingu (jafnvel ódýra?) þar sem við erum snemma í því. Eru ekki allir með?
Gott að byrja að safna núna.

Svo vil ég minna á skírn 25. nóv kl. 15 í Seiðakvísl 5 og öllum TMC er boðið :)



föstudagur, nóvember 09, 2007

Ég veit ekki betur en að okkar ástkæri meðlimur Ólafur kenndur við Újé hafi orðið árinu eldri í gær. Vil ég óska honum og fjölskyldu hans innilega til hamingju með það. Þeir sem vilja koma kossum til kappans geta kommentað og ég mun persónulega sjá um að koma þeim til skila í brunsinum á laugardaginn.

Lifið heil!



miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Hvað með bruns núna á sunnud?? (11.nóv) Lilla vill hitta ykkur aftur... :)



FERÐASAGA
VGK-Hönnunarhluti TMC Inc. does Barcelona

Jæja, fyrst ég ligg heima með katalónska flensu get ég alveg eins reynt að skrifa einvherja punkta um ferðina. Ég, Dan, SHE og Eldjárn fórum s.s. á fimmtudeginum en Újé og Tikkatikk komu á föstudeginum. Við lentum frekar seint á fimmtudagskvöldinu vorum ekki kominn upp á hótel fyrr en um miðnætti. Hótelið var alger snilld. Þetta var nýuppgert fjögurra stjörnu hótel og staðsett við torgið Plaza Catalunya sem er efst á Römblunni. Dan fékk hótelherbergi númer 002 sem var við hliðina á hótelbarnum :D og þar af leiðandi sjálfvalið sem partýherbergið. Það stóð undir nafni.

Við skelltum okkur á röltið þarna um kvöldið, fundum tapas bar á römblunni og létum fara vel um okkur. Það eina sem truflaði var hóruhópurinn og fiðringskallarnir sem settust rétt hjá okkur en við náðum að líta út fyrir eins og ekkert væri á myndinni.


Seinna um kvöldið var endað í hámenningarlegum umræðum í 002 með G&T úr tollinum fram til að verða 5. Næsti dagur fór í létt rölt um verslunargöturnar þar stoppað var í öl öðru hverju. Seinnipartinn tókum við svo fagnandi við komu Újé&TT og ákvað þá karlpeningurinn í hópnum að prufkeyra spa-aðstöðu hótelsins. Allt var þetta liður í undirbúningi kvöldins þar sem að Sóley (kennd við Edu) barcelona-búi hafði pantað fyrir okkur borð á góðum veitingastað. Við vorum í heild 12 manns og fengum hringborð í sérherbergi á veitingastaðnum og prívat þjón :) geggjað! Eftir að hafa eytt kvöldinu þarna fórum við á einn sveittan stað þar sem kokteilar og g&t riðu rækjum.


Eftir erfiðan morgun daginn eftir þar sem meðal annars ég svaf af mér hádegismatinn kl 14 var kíkt á röltið. Það markverðasta í þeirri ferð var að Danna tókst að setja á svið söguna um Ingjaldsfíflið í einni Diesel búðinni ...


Svo var það árshátðin....

Forfordrykkur hófst í 002 klukkutíma fyrir almenn fordrykkinn við útisundlaugina. Fólk var almennt vel stemmd en umfram allt vel svalt!


Maturinn var ekki til að hrópa húrra fyrir enda kannski ekki einfalt að bera á borð kvöldmat fyrir 350 manns í einu. Mikið var hlegið yfir hinu árlega árshátíðarmyndbandi og síðan spilaði hinn eini sanni Páll Óskar alveg snilldarlega fyrir dansi þar sem að allir helstu yfirmenn fyrirtækisins gerðu sig skemmtilega að fífli. Íslendingurinn kláraði síðan áfengisbyrgðir hótelsins rétt eftir miðnætti og Spánverjinn vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Þá kom mini-barinn að góðum notum. Restin af kvöldinu er síðan í talsverðri móðu en sjálfur skellti ég mér í penthouse partý í 506 meðan sögusagnir um blússandi trekant í 002 voru staðfestar daginn eftir.

Ferðinni var svo slaufað með spænskri paellu á veitingastað við sjóinn þar sem við kvöddum Sóley og Edu. Læt eina mynd tekna yfir höfnina ofan úr Kólumbusarturninum fylgja með.


Þakka fyrir samveruna kids! Hvenær er svo næsti bröns hér á klakanum???



Jæja hvernig væri nú að koma með smá TMC-Hönnun slúður-/ferðasögu..
Hvernig var???