Brunch vs. lunchJá, eftir að hafa gúffað í okkur beyglum og vefjum í hádeginu áðan þá var ákveðið með miklum meirihluta atkvæða að hittast í brunch á Vegamótum núna á laugardaginn kl. 11:00
Eins gott að láta sig ekki vanta á þessa nýjung í félagslífi TMC-ara!!!
Önnur mál á dagskrá voru til dæmis þau hvort ekki væri sniðugt að fara að breyta úr föstum vikulegum lunch yfir í fasta vikulega fimmtudagskvöldhittinga. Nú þegar hefur verið gerð ein prufutilraun og voru þeir sem tóku þátt í henni allir sammála um ágæti þess hittings. Kostir þessara breytingar eru margir og ótvíræðir. Fyrst má nefna að fólk er mun afslappaðra enda ekki þjakað af áhyggjum vegna skóla eða vinnu. Í annan stað fáum við að eyða meiri tíma saman sem engum þykir leiðinlegt ;) Loks má geta þess að á fimmtudagskvöldum mun vera leyfilegt að innbyrða áfengi en það er mikið fagnaðarefni enda vex skemmtun í réttu hlutfall við magn áfengis...
Hvað segið þið grislingar? Hljómar þetta ekki vel?