Takk fyrir okkur Katy&Stones!! Íbúðin er alveg mögnuð ;) Svo er það "innflutningspartý" hjá Sturlunni og pysjunni hans næstkomandi föstudagskvöld!! Vonandi sjá flestir sér fært að mæta :o)
THE MATH CLUB
okkar eigins leyndarmal !!!
sunnudagur, ágúst 31, 2003
Jæja, þá er maður búinn með 1. heimadæmi annarinnar í straumfræði, og það gekk svona þrusuvel hjá mér, Magga og Bleika. Tók bara tæpa tvo tíma með miklu spjalli : )
laugardagur, ágúst 30, 2003
Takk fyrir gærkvöldið. Og aftur til hamingju með íbúðina Katy og Stones, ekkert smá sæt íbúð. En ætla ekki allir að mæta í kvöld í Nauthólsvíkina?? Sjáumst þar hress og kát.......
föstudagur, ágúst 29, 2003
Hvah eru engar visindaferdir? Tha getur Thorey bara farid i langa sturtu....jafnvel bad ;o)
Bid med othreyju eftir einkunninni i greiningu II. Er eitthvad ad fretta af umhverfisverkfraedinni eda Ortolvu og maelitaekni stelpur?
fimmtudagur, ágúst 28, 2003
Annar skóladagur
Lagði af stað 7:40 í skólann í morgun, og ákvað að beygja ekki upp á Bústaðaveg heldur halda áfram og beygja inn á Miklubraut. En það var svo mikil umferð að ég beið á ljósunum við Kringluna í tvær umferðir. Ég mætti í skólann rúmlega 8:20 og þá voru frímínútur. Þær voru í u.þ.b. 15 mín svo kom kennarinn inn talaði í 2 mín og sagði að tíminn væri búinn. Þar með var ég búinn í skólanum og hélt af stað í vinnuna..... mikið gagn í þessum skóladegi
þriðjudagur, ágúst 26, 2003
Var að skoða íbúðina hennar Katrínar - ýkt sæt!!! Veit samt ekki hvar hún ætlar að koma ÖLLU dótinu sínu fyrir ???
Annars hlakka ég ofsa til að sjá flest af ykkur í fyrramálið.......... ;)
Til hamingju Katy!!! Mér datt nú aldrei neitt annað í hug en að þú myndir rúlla þessu upp eins og ekkert væri! Úff, svo bara skóli í fyrramálið... Ég var rosa spennt fyrir svona tveimur vikum en núna myndi ég alveg þiggja svona eins og tveggja vikna frí, eitthvað svo mikið að gera bara og svo er ég eitthvað svo ógurlega þreytt allt í einu. Held ég fari bara heim og leggi mig núna ;)
Til haaamingju Katrín, bæði með prófið og svo líka með flutningana. Ég er að reyna að ákveða í hverju ég á að vera þegar við Doddi komum á aðfangadagskvöld ;o)
Kíkti aðeins á háskólasvæðið mitt til að athuga með stærðfræðigreininguna, ekkert komið enn. Engar fréttir eru góðar fréttir.....I guess.
Tilkynning Tilkynning Katrín Karlsdóttir hefur náð tölvunarfræði 1a, ég endurtek hefur náð tölvunarfræði 1a!!!
Hæbb,
takk fyrir að hittast og horfa á mig. Ég var búin að vera rosa hraust eftir mótið en þegar ég kom upp á hótel og sá skilaboðið frá Silju um að þið ætluðuð að hittast, datt hraustleikinn af mér. Vona að þið hafið samt skemmt ykkur yfir góðu sjónvarpsefni (frjálsar)!!
Þetta kemur bara næst,
Þórey
mánudagur, ágúst 25, 2003
Halló.... er það þá ákveðið eða hvað?? ég er til í að mæta. Sjáumst þá!!! En ef ég er eitthvað að misskilja endilega látið mig vita:)
Við Kris erum svaaaka til i að horfa a Totu litlu stökkva a prikinu sinu i dag......
Það er ekkert mal að vera heima hja okkur!
sunnudagur, ágúst 24, 2003
Var að spá hvort það væri einhver stemmning fyrir því að horfa saman á Þórey Eddu á morgun? Þetta byrjar kl. 16.25.
Yo yo yo
Komin til mæjamí eftir langa ferð. Setti persónulegt met.....náði að sofna í Flugleiðavél....nokkuð gott.
Erum bara á fullu við að ryksuga dauða maura upp úr stofuteppinu, hressleikinn er yfirgengilegur.
Til hamingju með að hafa komist í úrslit Þórey, ég mun refresha mbl á tíu mínútna fresti á morgun til að sjá hvernig gengur, held að það sé ekki pláss fyrir HM í bandarísku sjónvarpi fyrir Jerry Springer og álíka sora ;o)
Bið ykkur svo vel að lifa
Takk fyrir þetta. Ég er svo fegin að hafa komist áfram að þið trúið því ekki!! Mér leið annars frekar vel í keppninni, með sjálfstraustið í lagi og ákveðin í að komast áfram. Á morgun ætla ég svo að gera mitt besta en það væri gaman að fara hátt.........
Til hamingju stelpur að vera búnar í prófunum og látið okkur vita hvernig húsamálin ganga!
laugardagur, ágúst 23, 2003
Vei vei!!! Þórey Edda er komin í úrslit!!! Leiðinlegt að maður fékk ekkert að sjá hana stökkva :( en vonandi verður bætt úr því á mánudag....
föstudagur, ágúst 22, 2003
Ætla ekki allir að horfa á Þórey Eddu á morgun? Við sendum náttla bestu kveðjur til hennar og vonum að henni gangi vel!
fimmtudagur, ágúst 21, 2003
Ég var að fjárfesta í bókarskruddum og stílabókum fyrir 37.000,- sem eru sko ekki peningar sem maður sér eftir miðað við allan þann fróðleik sem maður á eftir að blóðþurrka úr þessum metersþykka pappírsbunka. Lífið er yndislegt.....
miðvikudagur, ágúst 20, 2003
Nennir einhver að segja eitthvað spennandi???? Slúður, fréttir or something! Ég hef ekkert að segja ;(
þriðjudagur, ágúst 19, 2003
Innan skamms verður TMC sameinað á ný undir merkjum visku, kunnáttu og lærdóms í musteri voru VR-II!!! Bara örfáir dagar í að skólinn byrji, eru ekki allir ógó spenntir????
Við Doddi viljum hér með bjóða ykkur í grillveislu að 7716 s.w. 56th avenue í Coral Gables.........
Bara einhvern tímann þegar þið droppið við.
Einmitt 2 fyrir 1 tilboð hjá Fluleiðum á flugmiðum til USA.....sérlega tilvalið fyrir þá sem voru að byrja að leigja eða hyggja á íbúðarkaup!
Munið svo eftir góða skapinu.....
mánudagur, ágúst 18, 2003
TMC hittingur hjá Stebba og Ásdís innan tíðar! Vildi að það hefði verið mögulegt áður en Dísa&Dodds fara til Miami en það lítur alls ekki vel út ;( Ég verð nú að fá hann Stebba minn heim úr HágöngumSmjágöngum fyrst.... Snökt snökt... Það verður allavega þrusuboð von bráðar, ég lofa því :)
JÁ JÁ... nú getum við alltaf verið að hittast VEIVEIVEI !!! En mér finnst nú heimsókn til Stebba og Ásdísar hafa forgang því þau fluttu fyrst !
sunnudagur, ágúst 17, 2003
Vó vó vó! Maður má ekki bregða sér í helgarferð nema hálfur klúbburinn sé búin að fjárfesta í íbúðum, einbýlishúsum og ég veit ekki hvað!!! Ma' bara á ekki til orð! En til hamingju með þetta gott fólk, ég hlakka mjög til að kíkja í heimsókn :)
Til hamingju með íbúðirnar Ásdís+Doddi og Katrín+Steinar. Ég er strax farin að hlakka til að koma í heimsókn. En ótrúlegt en satt þá skrapp ég aðeins í afmæli áðan, já afmælistörnin er að byrja:) En svo læri læri núna, veivei..........
laugardagur, ágúst 16, 2003
Jibbí, ég er búin í prófinu mínu. Þetta gekk svona skítsæmilega. Ég gerði allt prófið en 30% var samt algjört bull hjá mér. Sjáum hvað þetta dugar.
Ég sit hérna í tölvuverinu í VRII við hliðina Katrínu og hún er þvílíkt að uppgötva tölvunarfræðina. Mér sýnist hún ætla að skipta um major.
æi sorrý ég er svo gleymin... ég skal hafa steikina tilbúna þegar þið komið á aðfangadag Ásdís mín og Doddi minn !!
Takk fyrir þetta Katrín mín og til hamingju sömuleiðis. Ég hlakka mikið til að bjóða mér í heimsókn til þín :o) Hvernig væri að við kæmum á aðfangadagskvöld?
föstudagur, ágúst 15, 2003
jæja krakkar !!! Það verður TMC-meeting í nýju íbúðinni minni og Steinars áður en Þórey Edda fer alfarið til Lifurkúrsu...
Ég vil líka óska Ásdísi og Dodda til hamingju með nýju íbúðina sína í svæði KR-inga ;o)
fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Jæja, ég er að hugsa um að kasta kveðju á ykkur og óska þeim meðlimum TMC sem eru að fara í sumarpróf alls hins besta. Nú er maður nefnilega að fara í næstum níu daga lengst upp á hálendi þar sem samband við umheiminn er í algjöru lágmarki. Það næst einungis NMT samband svona af og til.
Sé ykkur seinna..........
miðvikudagur, ágúst 13, 2003
Mig langar að óska örvhenta fólkinu okkar til hamingju með daginn, þar sem að það er alþjóðadagur örvhentra í dag:)
Vei, vei! Leiðin liggur í Bítlabæinn mikla í kveld :) Ástæðan er saumaklúbbur hjá skvísunum og það lítur út fyrir 100% mætingu! Jibbí!!! Langt síðan ég hef kjaftað við stelpurnar....
þriðjudagur, ágúst 12, 2003
Veit e-r hvenær skólinn byrjar nákvæmlega. Ég var nebbla búin að heyra 27. svo var ég að skoða háskóla dagatalið og þar stendur að fyrsti skóladagur sé 25??
Jæja krakkar, svaka spenningur fyrir prófin. Stemningin upp í VR 2 í gær var gríðarleg. Hvernig var svo maturinn hjá ykkur VR ingum í gær, var verið lengi að?? Læt ekki sjá mig fyrr en í prófunum, gangi ykkur vel :)
sunnudagur, ágúst 10, 2003
Það er bara snilld að vera að lesa út í VR2 þessa dagana. Ég, Silja, Hlín og Þórey Edda erum alveg að skemmta okkur konunglega... og svo eitt að lokum:
"Katrín, ég veit af hverju þér finnst svona gaman í bíl !! Það er svo lítið pláss heima hjá þér......"
Já já heyðu nennir eitthvaert ykkar að skreppa fyrir mig út í búð og kaupa 2 lítra af kóki,einn pulsupakka og pulsubrauð náttúrulega!!! fínnt ef þið gætuð gert þetta fyrir kl sex! ok :) .Annars var farið á smá skrall í gær-fullt af hommum og lespíum!!! meðal annars var reynt að ná í danna en það var alveg ómögulegt, hann var víst alveg týndur-sko alveg týndur og Kristrún fann bara ekki kallinn sinn. En ég held að danni ætti að hlusta á talhólfið sitt. Jæja já sjáumst í síðasta lagi 9 september------gæti verið ég, gæti gæti verið þú, gæti verið hver sem er- 11. september--------yeah later
laugardagur, ágúst 09, 2003
Djöfull var ööööömurlegt að koma upp í VR-II í dag og þurfa að setjast upp á bókasafn til að læra. Við Katrín stóðum okkur samt vel, reiknuðum nokkur vel valin dæmi, kíktum svo í Videó Ljónið bara svona upp á stemminguna að gera. Entumst nú ekki nema í örfáa klukkutíma, Kristján á nú ammili svo maður verður nú að vera fyrirmyndar húsfreyja og baka köku handa drengnum og svona!!! En núna er maður samt að komast í lærigírínn - ég finn það í tánum. Vann minn síðasta vinnudag í gær svo nú er það bara að einbeita næstu daga.
Annars vorkenni ég ykkur soldið sem eru ekki að fara í próf - þið vitið ekki af hverju þið eruð að missa fíflin ykkar.....
föstudagur, ágúst 08, 2003
Ég er komin heim og sorrý að texasinn hafi ekki verið til. Ég fer aftur út þann 20.ágúst og kem þann 30. Ef þið viljið athuga hvort hægt sé að panta inn í fríhöfnina þá get ég kippt þeim með mér þegar ég kem, eða ég get líka gáð að þeim í fríhöfnunum úti. Ég hef ekkert að gera á ferðalögum annað en að ráfa í búðir svo að kaupa dót fyrir aðra er það skemmtilegasta sem ég veit. Ekki djók!
fimmtudagur, ágúst 07, 2003
Strákar, Danni & Stebbi, ég átti að skila til ykkar frá Tótu rokk að Texasinn var ekki til ;O(
Frekar fúlt, hvað gerum við þá???
Ég heyrði einhvern tímann að það væri hægt að hringja í fríhöfnina og panta hann svo hann yrði til en það þarf þá örugglega einhvern fyrirvara!!! Er hún ekki annars að koma í kvöld???
Elskurnar mínar, ekki málið. Ég vona bara að gripurinn sé til í Wallmartinum. Ég var svo svöng eftir æfingu áðan að ég gat ekki gáð að því, þurfti að drulla mér heim að borða. Þið millifærið bara þegar þið getið, ég set þetta á kortið svo ég þarf ekki að borga þá fyrr en um næstu mánaðarmót.
Planið er að læra aðeins núna og fara svo í leiðangur. Eruð þið að læra upp í VR-2? Ég hugsa að ég muni eiga heima þar í næstu viku því ég ætla að taka Greiningu burðarvikjaprófið þann 16.ágúst. Sjáumst í gleðinni :)
miðvikudagur, ágúst 06, 2003
Hæ, hæ.
Þórey, fyrst þú ætlar að reyna að kaupa tvo (vasareikna), er þá nokkuð meira mál að kaupa þrjá :). Það er lítið mál að leggja inn á þig en það yrði sennilega ekki fyrr en annað kvöld. Maður neyðist víst til að fjárfesta í svona grip eftir að hafa sætt ofsóknum allan síðasta vetur sem leiddu til ýmissa óþæginda, s.s kvíðakasta og svefntruflana, bara fyrir það að vera aðeins sérvitur :). Ef þú, Þórey, þarft endilega að fá millifærsluna einhvertíma á morgun, biddu þá einhvern hér á landi að hringja í mig.
Takk, takk.
Þórey það væri geggjað ef þú gætir keypt fyrir með TEXAS!!!
Smsaðu bara á mig reikningsnúmerið og ég legg inn á þig, ok???
Það væri vel þegið ef þú ert e-ð á leiðinni þangað (í Wallmart). Þá væri ekkert mál að leggja inn á þig. Hvar ertu annars?
Þetta er rétt hjá Ásdísi, þeir selja ekki Texasa. Wallmart er hérna 5 mín í burtu og ef þið viljið að ég tékki á því hvort hann sé til þar þá get ég gert það. Í USA kostar hann 11.000 en hér kannski aðeins dýrari. Ég fer heim annaðkvöld eða héðan um 19:30.
Látið mig vita.
Danni og Silja, ef þið viljið þá get ég keypt þennan blessaða TI-89 í fríhöfninni fyrir ykkur. Ég kem heim annaðkvöld. Hann kostar þar held ég um 16.000 annars getið þið hringt þangað og spurt.
Þórey
Vitiði nokkuð hvað hann kostar c.a.? Er bóksalan uppi á Höfða, rétt hjá Tækniháskólanum?
Silja, hættu að tala um hvað var gaman og farðu að hafa samviskubit yfir að hafa ekkert lært. (Nei grín, viss um að þetta var frábært ;o) )
Ég þarf einmitt líka að komast að því hvar ég finn TI-89!!!
En ÞJÓÐHÁTÍÐ var svoooo mikil snilld, þið misstuð sko af miklu sem ekki mættuð, ég er enn í sæluvímu eftir þessa helgi ;O)
Athugaðu í bóksölu Tækniháskólans. Ég keypti minn allavega þar..... Ég á TI-89 og þekki bara hann og svo hef ég séð suma með TI-92. Hann er meiri hlunkur og ég hef heyrt að þó svo að þessir tveir séu með svipaða virkni þá sé TI-92 oft óleyfilegur í prófum þótt TI-89 sé leyfilegur.
þriðjudagur, ágúst 05, 2003
Jæja þið sem fóruð til eyja, hvernig var??? Það hefur nú samt ekki getað verið skemmtilegra en hjá mér, það slær nú ekkert örtölvu-og mælitækni út:) En annars var ég bara dugleg að læra um helgina, reyndar var ég mikið úti í garði að læra í góða veðrinu. En svo var smá djamm á sunnudagskvöldinu. Þannig að þetta var alveg ágæt helgi.
Velkomin í klúbbinn, vona að þetta sé ekkert slæmt. Þá er það bara að halda áfram og komast í "3 á þrem vikum klúbbinn"...
Eru engar sögur eftir helgina. Ég, bróðir mömmu og Krissi (sem kíkti á okkur á laugardagskvöldið) drukkum saman eina tequila flösku og vorum að til 6 um morguninn, svaka fjör... svo þegar maður vaknaði fékk maður bjór til að losna við hausverkinn.
laugardagur, ágúst 02, 2003
föstudagur, ágúst 01, 2003
Hvar fann Stebbi lyklaborðið með skemmtilegu stöfunum??? Ég er allavega að fara í mat til Spönnu og Spóa á laugardagskvöldið og svo verður sprellað í bænum... Ríkey (og hinir sem eru á lausu) endilega call me ef þið kíkið í bæinn !!!
Svo segi ég bara góða skemmtun allir sem eru að fara eitthvað annað en að vera bara heima sér c",)
....::::ÞJÓÐHÁTÍÐ::::....
Hver var að tala um lærdóm spærdóm - ekkert helvítis kjaftæði!!!!!!!
Ég & Kristján erum farin til EYJA ;O)
