föstudagur, apríl 14, 2006

Hæ allir að hoppa!!

Takk kærlega fyrir síðast! Þvílíka snilldin, sérstaklega skemmtiatriðin hans Danna en þess má geta að þau skiluðu sér sem skildi og gott betur.

En ef mig minnir rétt þá var ákveðið að hittast í lunch núna á laugardaginn (morgun) kl 13.30 á 101 (sem ég veit ekki enn almennilega hvað eða hvar er, er það hótelið?). Ég verð örugglega að vísu aðeins seinn (æfing til 13.30) en ykkur varðar ekkert um það. Hverjir mæta?



miðvikudagur, apríl 12, 2006

HEI símtal að ofan (ofan úr Kobbavogi)... mæting um kl. 21:00 í kvöld!

Komið endilega með einhverja skemmtilega potta(s)leiki... Ástþór M mætir með skemmtiatriði og Danni ætlar að kú** fyrir okkur T-streng (miklu erfiðara en í G-streng)! Og ef þið hafið frá einhverri skemmtilegri og spennandi skáldsögu að segja endilega undirbúið sketsa...



föstudagur, apríl 07, 2006

Sæl verið þið

Við héldum innflutningspartý þann 1. apríl síðastliðinn, en allir virtust vera uppteknir þá, bæði þeir sem voru erlendis og hérlendis. Því ætlum við að gera tilraun númer tvö og bjóða ykkur heim miðvikudaginn 12 apríl.

Þetta verður sérstakt TMC partý, búið verður að láta renna í pottinn taka til.

Okkur hlakkar til að sjá ykkur, endilega kommentið hér að neðan hvort þið komist.

Kveðja Jónína og Siggi