Var að stinga upp á því við Óla áðan að hann, systir þín Hlín og bróðir þinn Stebbi ættu að stofna The second generation of the math club;)
THE MATH CLUB
okkar eigins leyndarmal !!!
þriðjudagur, ágúst 31, 2004
mánudagur, ágúst 30, 2004
h-ólí m-ólí-- á morgun byrjar þetta víst! var að fá dæmablað í línulegri algebru! botna voða lítið í því (glúbb)..
-eins og þeir segja ÆÐI GÆÐI --bæ
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
mánudagur, ágúst 23, 2004
jæja ég geri þá aðra tilraun til að bjóða ykkur heim... eigum við að segja mæting í úrslit kl.19.30 heima hjá mér og ég býð upp á köku! kv.KaKa
Vú hú Þórey er snillingur, og langaði mig að ath hvernig restinni af liðinu litist á að við myndum sameinast e-r staðar og horfa á þennan snilling jummpa yfir þvílíkar hæðir annað kvöld?? Sjónvarpið mitt er ekki nema 20" þannig að það væri kannski betra ef það væri hægt að horfa á það e-r staðar þar sem Tv. er kannski örlítið stærra. Endilega kommentiði ;)
sunnudagur, ágúst 22, 2004
Vei vei! Þórey komin í úrslit!! Það er bara snilldin ein og líka geggjað að Stacy Dragila sjálf sé dottin úr keppni en Þórey hetja ekki ;) Það verður gaman að fylgjast með!!
miðvikudagur, ágúst 18, 2004
jæja bókaormar og aðrir merkir menn!!! Hver kemur í luns á morgun? Og komist þið á TMC áhorf á Þórey Eddu á laugard?
fimmtudagur, ágúst 12, 2004
Hellúúú.... :O)
Það er klikkað veður.... hvert viljiði fara - Sólon !!! Bara hugmynd.... ef við erum kannski aðeins fyrr í því gætum við náð borðum úti e-r staðar :OX
Annars hvað er verið að spá...???
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Hæ ég verð bara að segja að þetta var einn versti dagur minn í vinnunni, þegar maður er orðinn ber að ofan og kófsveittur og það er enn alltof heitt þá er illt í efni. Það er ekki alltaf gott að vinna úti :-)
Hello kids!
Er ekki hádegisverður á morgun? Ég held allavega að ég, Silja og Ríkey verðum allar í VR-II svo við ættum að geta komist eða hvað???
Kveðja,
Ásdís
mánudagur, ágúst 09, 2004
Hæ hó, hvernig var á föstudagskvöldið? Segið frá fyrir okkur hin sem komumst ekki, var þetta alvöru djamm eða bara rólegheit?
fimmtudagur, ágúst 05, 2004
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Jæja núna er verslunarmannahelgin búin og ég komin upp í VR2, ótrúlega góð tilfinning eða kannski ekki;) En vildi bara láta ykkur vita að ég er búin að setja inn myndir frá Fimmvörðuhálsgöngunni miklu. En best að sökkva sér ofan í bækurnar, verð samt með björgunakút svo ég komist aftur upp:)
