föstudagur, júlí 29, 2005

Jójójó

Takk fyrir síðast, drullugaman.

Þorvaldur litli vill koma því á framfæri að hann er búinn að setja upp myndasíðu. Hægt er að nálgast hana hér. Einnig biður hann um að hver sá sem er admin á þessari síðu (Katy?) breyti tenglinum á hann svo allir geti notið dýrðarinnar.....

.....svo væri kannski bara sniðugt að stofna fyrir hann aðgang að síðunni, þá getur hann tjáð sig einn og óstuddur.

Góða helgi



föstudagur, júlí 22, 2005

NOKKUR ATRIÐI SEM ÞARF AÐ ATHUGA ÁÐUR EN FARIÐ ER Í SUMÓ:
- pláss er fyrir átta manns í rúmum( en ég er búin að frátaka tvö, sorrý) en hægt væri að koma fyrir e-m dýnum á gólf líka. Það eru sængur fyrir átta inni en það væri voða gott ef þið kæmuð þá með sængurföt. Það eru tvö herbergi s.s. laus og í þeim er sitthvor kojan og neðri kojan í þeim er tvíbreið.
- hægt er að tjalda á lóðinni
- hver er með tvisterinn??
- e-r önnur spil
- Stebbi og Danni er drykkjuleikurinn ekki örugglega reddí
- Gítarinn er möst og bongó enn meira möst ;)
- Pottur á staðnum þannig að allir verða að koma með sundföt
- Kannski að leggja í hann rétt fyrir sjö, spurning um hvort fólk vill borða á undan eða hvað það vill gera, það er grill á staðnum.
- hmmmm ef ég gleymdi e-u látið mig þá barasta vita, KOL mí



fimmtudagur, júlí 21, 2005

ER EKKI ALLIR Í STUÐI.......... ER EKKI GLEÐIN VIÐ VÖLD.............. ???

jæja kakkalakkar þá er orðið mjööööööööög stutt í "Sumarferð TMC 2005" en það var örlagaríkan dag, nánar tiltekið laugardaginn 30. apríl síðastliðin sem ákvörðun var tekin um að þessa helgi, akkúrat þessa helgi, sem er akkúrat næsta helgi, akkúrat á morgun föstudag til sunnudags yrði Sumarferðin hjá TMC!

Nú er komið að þessari helgi og ég er ekki frá því að eilítill spenningur sé í loftinu...... tjaaa ekki frá því...........

Hvenær er annars stefnan að bruna út úr bænum ????????



miðvikudagur, júlí 20, 2005

Matur á laugardagskvöld

Ok, bara svona til að hafa hlutina á hreinu ;) Þeir sem verða í mat á lau eru:

Stebbi - Salat
Óli - Ananas???
Siggi og Jónína - ????
Ásdís og Doddi - Súkkulaðikaka
Katrín og Steinar - Kartöflusalat
Ásdís og Mr. Right - Grænmetisteinar á grillið
Danni - ???
Hlín Ben og Mr. J - Snakk í bústaðnum ???

Kannski geta Stebbi, Óli og Danni bara slegið saman í grand salados??? Þá eru það bara Siggi og Jónína sem eru eftir..



mánudagur, júlí 18, 2005

SUMARBÚSTAÐUR NÆSTU HELGI!!!

Spennan er að ná hámarki hérna megin! Vá hvað ég hlakka til :))

Einhverjum leist vel á hafa matinn svona hálfsameiginlegan á laugardagskvöldið. Vorum að spá hvort að allir ættu að koma með sitt kjöt eða whatever á grillið og að sjálfsögðu eitthvað gott að drekka en svo gæti meðlætið verið svona sameiginlegt svo að það séu ekki allir að koma með allt.

Gætum kannski prófað að láta fólk setja í komment það sem þeir væru til í að koma með og séð hvernig það kemur út. Ef að allir eru hugmyndasnauðir eða ef hugmyndin verður púuð niður þá sleppum við þessu bara :)

En svona til að stinga upp á einhverju þá er t.d. salat, kartöflusalat, grillaðir fylltir sveppir, snakk/pikknikk, eftirréttur, maís/aspas á grillið eða eitthvað annað grænmeti...

Svo er bara að biðja fyrir góðu pottaveðri :)



fimmtudagur, júlí 14, 2005

FIM HITTINGUR Í KVÖLD....... eða hvað ?

Eigum við ekki að reyna að hittast í kvöld lömbin mín!
Hvað segiði um t.d. Hressó, veit að þar eru yfirleitt trúbadorar á fimmtudögum og oft ágætis stemming ;)
Annars er ég til í hvað sem er, bara aðalatriðið að við hittumst!!!

Ertu maður eða mús.... ???????????????



laugardagur, júlí 09, 2005

Kjaftakvöld!

Vegna gríðarlegra undirtekta við hugmynd mína að halda loksins eitt gamalt og gott kjaftakvöld ætla ég hér með að bjóða ykkur öllum að Lækjarbergi 13, 221 Hafnarfjarðarsveit, kl 21.00 á sunnudagskvöldið. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.

Aiiiiiiid!



þriðjudagur, júlí 05, 2005

Gleður mig að tilkynna að ég komst inn í Ecole Nationale Supérieure d'Ingénieurs Electriciens de Grenoble og mun því að öllum líkindum flytja til Frakklands eftir rúman mánuð ;)