laugardagur, maí 31, 2008

Erum við ekki að tala um að dúllubossast frá Seltjarnarneslaug kl.16:30 á morgun, sunnudag? Má ég heyra AMEN?

Og taka bara Phoebe á þetta…



mánudagur, maí 26, 2008



laugardagur, maí 24, 2008

Íþróttaátak TMC 2008

Heilsuæði virðist hafa gripið um sig í TMC...... næsta sunnudag þá er planið að hittast við Árbæjarlaug kl.16:30 og hlaupa í Elliðaárdalnum. Síðan verða teknir nokkrir sprettir í lauginni áður en farið verður í pottana. Að sjálfsögðu verður snæddur hollustukvöldverður að þessu loknu. Eins og var rætt á fimmtudaginn þá er frjáls stíll í hlaupinu.

Hlakka til að sjá ykkur - Áfram Ísland ......

Kveðja,
Rikka íþróttaálfur ;)



fimmtudagur, maí 22, 2008

Eurovision-pepp
Svona rétt til að koma fólki í léttan stemmara langaði mig að henda þessu vídjói inn. Framlag Vestur-Þjóðverja '82 þar sem Nicole leikur hið angurværa lag Ein Bisschen Frieden. Gefið gaum að glæsilegu kynningarmyndbandi á undan laginu. Þetta var á þeim tíma sem fólk söng á sínu ylhýra móðurmáli, klæðnaður hinn glæsilegasti og velsæmis gætt í framkomu. Nú er öldin önnur: dúndrandi hommatekknó, brjóllurnar úti og allir að klæða sig hóró er normið. Ég bið um glæsileika ekki glyðruskap í kvöld, takk fyrir.




fimmtudagur, maí 15, 2008

Það var svo GAMAN Á VORFAGNAÐINUM!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!




Ríkey & Óllaffuuuurrrr..... takk fyrir okkur!!! ´

Ég leyfi mér að vísa í eitt gamalt og gott orðatiltæki frá Ólafi nokkrum Rikkson : "Það er svoooo erfitt að halda partý!!!"



þriðjudagur, maí 06, 2008


Elsku HLÍN til hamingju með megrunarlausa daginn í dag... :D




Til hammó með ammó Hlínsa:)

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Hlín,
hún á afmæli í dag

VEI VEI VEI ..............................



föstudagur, maí 02, 2008

JÆJA JÆJA.... ekki missa sig alveg í laugardeginum 3. maí því það er svo BRÖNS 4. maí... ekki gleyma því!!

Mæting á Bræðró kl. 11:03 í egg og beikon og tilheyrandi :O)

Leikreglur eins og venjulega: 1 kaffibolli á mann, snyrtileg röð við hlaðborðið, ekki hróp og frammíköll, hendur undir borð og ekki segja orð og síðast en ekki síst bannað að syngja við matarborðið!

Hverjir koma með hvað???
Rikk+Úje: Brauð
Sísí Páls+Kris: Drykkir
Þrísom: Sætabrauð, álegg (skinks+ostur...?)
KK+Ellen: Egg, kartöflur, USA pancakes
Dís+Franz: ananas, tómatar
Djólín+Fagri Blakkur: Beikon, síróp

Eru allir sáttir??
Eru ekki allir að mæta annars... ?

Hlakka til að sjá ykkur oggu pínku litlu monsurnar mínar :O)