THE MATH CLUB
okkar eigins leyndarmal !!!
sunnudagur, febrúar 29, 2004
laugardagur, febrúar 28, 2004
Okídókí, þá er það ákveðið: Klúbbur klukkan 14:00 á Eggertsgötu 2! Svo vil ég að allir mæti undirbúnir svona einu sinni! Lesa kaflana, reikna tímadæmin og sonna! Ekkert múður! Hahahha!
Ásdís láttu okkur bara vita hvenær það hentar þér best. Við mætum bara fersk og kát að vanda. Eða að minnsta kosti ég og ég tek myndirnar frá árshátíðinni með mér. Hvet þess vegna alla TMC meðlima til að mæta og hlæja smá.
fimmtudagur, febrúar 26, 2004
Það verður stærðfræðiklúbbur hjá mér á sunnudag. Ég get ekki haldið hann fyrr en eftir 13:00 því ég er í verklegu frá 10-13... Hvenær viljið þið koma?
Kveðja,
Ásdís
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
Til hamingju með 4,50m Þórey.
Langaði bara að segja að þetta var mjög skemmtileg árshátíð þrátt fyrir misheppnað mojito. En sódastreamið stóð fyrir sínu;) Verðum svo bara að halda árshátíð TMC eftir ár og fara á eitthvað hótel og gista...... eða kannski ekki......
mánudagur, febrúar 23, 2004
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
Hæ hæ og hó! Það er að koma árshátíð!!! Mig langar að leggja í hann upp úr hádegi... en ég ætla samt ekki að gera neinar kröfur því ég get ekki farið á bíl ;) Svo er ég víst búin að lofa Elham frá Íran fari með okkur í TMC genginu.... Vona að það gangi upp!
Svo var ég að vona að það væri sólbaðsstofa í Hveragerði... Veit einhver um soleis dót þar? Ég get ekki verið eins og kríuskítur í nýja kjólnum ;)
Kveðja,
Ásdís
þriðjudagur, febrúar 17, 2004
Jæja en þá er spurning um að fara að skipuleggja ferðir austur á föstud. Hverjir ætla á bílum o.s.frv.???? Hvenær eigum við að fara og kaupa í Mojito eða hvað það heitir??? Speak up.........
mánudagur, febrúar 16, 2004
ha ha ah ahhhhhhhh hólla halló!!! hvað segið þið gott ? ahhhh gott---ha já ég svona la la ----helgin: fór norður í land með honum inga skólafélaga mínum að leggja rafmagn í sumarbútað foreldra minna. það gekk alveg ágætlega, vorum alveg ofboðslega duglegir.....en á laugardaskvöldið eftir erfiðann dag þá hugsaði ég jæja þá er dagu að kveldi kominn, best að leggjast til hvílu. en nei partýdýrið hann ingi var með eitthvað glott í augunum og ég var hálf hræddur við hann, hann vildi endilega skreppa til akureyrar, humm hugsaði ég neiiiiii það gengur ekki, en svo leit ég aftur í augun á inga og sá að ég fengi engu að ráða........þannig að klukkutíma seinna vorum við komnir í höfuðstað norðursins......þá var ekkert annað að gera en að sturta í sig áfengi.....það gerði ég með hjálp partyshoooterans míns (www.iwantoneofthose.com) þannig að á ca 4-5sek var einn bjór kominn í mallann minn hikk hikk......svo á endanum fór maður á ball með strákunum í svörtum fötum ..... þar stóð frændi uppá sviði og söng þannig að ég ákvað að halda uppi heiðri fjölskyldunnar á dansgólfinu og dansaði og dansaði og dansaði svo hitti ég líu frænku sem var að horfa á strákinn sinn syngja, hún kyssti mig og knúsaði---og sagði svo neeeiiii óli minn þú sefur ekki í bílnum (ætluðum sko að sofa í bílnum) þú kemur bara heim til mín og sefur þar....svo daginn eftir vaknaði maður í allt of littlum sófa við það að heil hljómsveit var að fara úr húsi-- og fekk að narta í einhvern mat hjá líu frænku-------þá loksins er ég kominn að því sem ég ætlaði að segja (btw ég er orðinn svolítið þreyttur í puttunum) við spjölluðum aðeins þá var hún að segja eitthvað að það væri nú kraftur í þessum strákum að spila svona á böllum heilu helgarnar og ÞÁ fór hún að minnast á DODDA að þegar hann hefði verið með í för þá hefi hann dregið þá á lappir og hent þeim út---- ha ha doddi jáh ég hef nú hitt hannn flottur strákur sagði ég jájá jájhá sov fór ég með eitthvað úr sem einhver lukku l-áki gleymdi til reykjavíkur og gleymdi símanum mínum í staðinn (helvítis) svo er síminn minn í einhverri rútu á leiðinni til mín...........ég sakna símans míns.................bless-------og jáhhhh verðru ekki fjör á föstudaginn????? it better be ----held að ég læri af reynslunni í fyrra og sleppi því að vera í spariskóm verð bara í hlaupaskóm!!!! þá verð ég safe! yebbb hlaupaskór it is....................later óli skóli ---------humm langt blogg bæ-----var að lesa þetta yfir ---er hálfgert bull þið fáið stig í kladdann ef þið náði að lesa þetta án þess að tapa einbeitingunni!
