þriðjudagur, ágúst 12, 2008

ætlaði alltaf að láta ykkur vita að ég reyndi að læsa blogginu og ekkert gekk... held við þurfum að redda nýrri týpu... fine by me svo sem... 

og yfir í annað: ég er alltaf að hlaupa, hvað með ykkur? komin yfir 8 km múrinn og get ekki beðið eftir að komast 10 km þann 23. nk :)




sunnudagur, ágúst 10, 2008

Tónlei-hei-kar
Rakst á 2 tónleika í NY sem eru algjör hvalreki á fjörur okkar TMC-ara.
1.Weezer í Madison Square Garden 24.sept.
Megahressir drengir og fullt af hitturum : Island in the Sun, Buddy Holly, Say it Ain't So, Hash Pipe o.m.fl. Stórir tónleikar á stórum leikvangi.
Miðinn mun kosta um 55 dollara.

2.Kings of Leon í Webster Hall 23. sept.
Sjóðheitir gæjar sem eru að gera svaka fína hluti. Minni tónleikastaður en MSG.
Miðinn mun kosta um 35 dollara.

Dandy Warhols eru ekki að spila þegar við erum út eins og ég hélt.

Miðasala hefst næsta fös. á báða tónleika. Býst við að þeir seljist hratt.
Er þetta eitthvað sem fólki líst á? Einhverjar aðrar tónleikapælingar? Maður verður að tékka á flottum tónleikum ef maður er að fara til New York á annað borð. Ha, krakkar ha? (blikk, blikk)



miðvikudagur, ágúst 06, 2008

BRUNCH..................

Hvernig líst ykkur á að hafa brunch á sunnudaginn 10.ágúst? Eigum við að segja kl. 11:00..... og þar sem það er orðið rosa stutt í NY þá þyrftum við að taka smá snúning á dagskránni fyrir ferðina, sérstaklega ef við ætlum að panta borð eða eitthvað álíka þá eru bara 6 vikur þangað til við förum og það er ekki langur tími ......... OMG OMG OMG...... shitsen blitsen.......

Endilega látið vita hvað ykkur finnst..... ég vil helst hafa þetta í heimahúsi...... held að við getum jafnvel boðið ykkur til okkar (ef ég verð ekki að vinna;) ).

Over and out......