THE MATH CLUB
okkar eigins leyndarmal !!!
fimmtudagur, júlí 31, 2003
Ég ætla með DÃsu norður à ferðina sem hún er að skipuleggja fyrir erlendu nemana sem eru hér à sumar. Ég held það verði massa ferð enda hefur maður ekkert séð af norðurlandinu nema Sjallann (það var ekkert annað spennandi à menningarferð Flensborgara hér forðum daga). Sjáumst seinna....
Hvert er stefnan um helgina hjá fólkinu ?? Ég ætla allavega að láta sjá mig í Vestmananeyjunum og vil endilega hitta ykkur þar ef þið látið sjá ykkur.
miðvikudagur, júlí 30, 2003
Allsherjar útkall TMC!
Allir meðlimir TMC eru vinsamlegast beðnir um að taka frá laugardagskvöldið 6. september. Þá mun fara fram stórskemmtileg uppákoma rétt fyrir utan borgarmörkin. Lifandi tónlistarupplifun og fljótandi veigar á staðnum. Nánar auglýst síðar.
Jæja krakkar mínir, allir bara hressir
Ég lenti í gær eftir svaka ferð. Vorum í Svendborg í viku í æfingabúðum með stelpunum sem ég er að þjálfa. Gekk bara allt frekar vel og eyddum svo gærdeginum á stikinu og í tívolíinu. Ég er svona frekar þreytt eftri að hafa vakað soldið lengi í gær og lent seint. En maður verður að hressa sig við fyrir þjóðhátíðina, þaggi :)
mánudagur, júlí 28, 2003
Laugavegur 2003
Þann 26. júlí sl. var farið á Laugaveg (101 Rvk.) og stoppað á hverri krá og drukkin ein krús af öli á hverri þeirra. Þetta var mikið fyllerí og það var voða voða gaman. Byrjað var klukkan 18:30 og lauk förinni um 3 leytið .... ef mig minnir rétt. Hitti Sigga H (takk fyrir síðast), vann var voða hross..., meina hress, eins og við var að búast. Dagurinn eftir var ekki svo slæmur eins og búast mátti við.
Það er alltaf gaman að eyða laugardagskvöldum í vinnunni eins og þið vitið... djammið er efst á óskalistanum þessa dagana en verður víst að bíða fram yfir 23.ágúst !!! Aldrei að vita nema maður kíki í bæinn næstu helgi en það verður því miður ekkert svaðalegt skrall. Þið skuluð því bara vara ykkur í september þegar Katy fer á stjá... c",)
sunnudagur, júlí 27, 2003
Afsakið óendanlega ritstíflu síðustu vikur. Við erum bæði á lífi.
Ég vil bara hér með óska eftir frásögn af Laugavegsferð síðasta laugardagskvölds.
Takk fyrir.
föstudagur, júlí 25, 2003
Í kvöld er ég er að fara í partý á Vídalín með henni Olgu skvís. Þar er Oddur rafmagnsgaur ásamt öðrum með svakapartý í tilefni af útgáfu tímaritsins GrapeWine. Svo ætlum við í partý til hins franska Julien. Annað kvöld er svo alþjóðakvöld á vegum IAESTE, AIESEC og IMSIC. Vonandi skemmta allir sér vel um helgina! :)
Nú skuluð þið hafa varann á á laugardaginn því að það er komið að hinum árlega Laugavegi hjá okkur félögunum, þar sem Laugavegurinn verður þræddur og drukkinn einn bjór á hverri krá. Varasamt getur verið að verða á vegi okkar, því við erum ekki á eigin ábyrgð heldur Bakkusar.
Hvað á annars að gera um helgina???
miðvikudagur, júlí 23, 2003
Mér líst rosalega vel á það að hittast um helgina eða í næstu viku.... ég er akkurat heima. Hvað með laugardagskvöldið? Það er samt algjört möst að hittast í september og detta í það!! Ég er að deyja, mig langar svo að verða heavy full..... hehe
þriðjudagur, júlí 22, 2003
Þið skrollarar, prufiði að minnka gluggan uppí hægra horninu og stækka svo aftur. Mér finnst það lang einfaldast þannig og það hefur aldrei klikkað.....
Mér líst vel á hitting en föstudagurinn er ekki inn hjá okkur hjúum, ég er að vinna og Dísa var eitthvað að hugsa um að halda vinnupartý. En það er svosum ansi erfitt að reyna að finna tíma sem við getum hitt annað fólk þegar við hittum hvort annað nánast aldrei. :(
Spáiði í þetta.....
mánudagur, júlí 21, 2003
Já ég gat það um daginn en það tókst ekki hjá mér í gær þegar ég ætlaði að lesa það sem Þórey skrifaði, skil ekki svona... svo virkar það núna...
Þú getur skrollað ef þú klikkar nokkrum sinnum á sitthvorn linkinn fyrir neðan "Meira bull" (dagsetningarnar) og þá koma allir pistlarnir upp, þetta virkar allavega hjá mér!!!
sunnudagur, júlí 20, 2003
Jæja halló halló-----hvað er að frétta?
Eru ekki allir fjandi hressir? Allavegana þá er ég kátur. En hvenær er næsta TMC partý, mér fannst sumarbústaðurinn heppnast svo rosanlega vel að það væri synd að hafa ekki almenninlegt frammhald? En allavegana yfir og út ekki hrökkva í kút!!!
later Óli
Ég þoli ekki að geta ekki skrollað!!! Ætli þetta sé eitthvað í settings? Vitið þið eitthvað um málið?
Annars bíð ég spennt eftir Reykhóla-sögunni...
Þið getið kíkt á www.pro-jump.de og þar sjáið þið hópinn ef þið kíkið á myndir. Stelpur, gæjarnir eru klikkað flottir, þið bara veriðið að kíkja!!!
hey wassup!
Mín er enn í Leverkusen hjá herra Spiegelberg. Þetta er alveg snarklikkað lið sem ég er að fara að æfa með. Um daginn var BBQ og voru þar ég og hópurinn minn ásamt fleiri stangarstökkvurum sem koma hingað milli móta. Málið var að það drukku ekki bara allir, heldur reyktu eins og svín!!!! Margir af strákunum voru að fara þremur dögum síðar á Gullmót í Róm. Ágætt að vera bara afslappaður..... Svo voru þeir farnir að segja sveppasögur af sér siðan síðasta haust þegar þeir voru að djamma eftir keppnistímabilið. Aðeins meira "easy going" en ég bjóst við hérna!
Ég reyndar fíla þennan hóp alveg í tætlur. Staðan er líka orðin þannig að ég kem ekki einu sinni heim um jólin því 17.des verður farið til Suður-Afríku í æfingabúðir og ekki komið til baka fyrr en 18.jan. Ágætt það.
Í vikunni á að fara til Kölnar (hálftíma í burtu) að versla. Ásdís, það er DIESEL búð þar og vá hvað ég ætla að tapa mér......
see ya
laugardagur, júlí 19, 2003
Hæ, hæ.
Jæja, nú er maður loksins kominn í helgarfrí. Þvílík steik. Ég hélt ég myndi deyja síðustu dagana upp á Heiði þar sem að ég þarf alltaf að vera í samfestingi sama hvernig viðrar. Því annars tæki sennilega allt kvöldið að þrífa olíuslettur o.þ.h. af öllum mögulegum og ómögulegum stöðum á líkamanum.
Annars er svo sem ekkert að frétta nema það að Skvísan er í ævintýraferð um allt vesturlandið eins og þið kannski vissuð. Hittir mjög skemmtilega á milli úthalda hjá mér. En allavega.......
Heyrst hefur fyrir ykkur sem eru að íhuga framhjáhald að Reykhólar???? sé staðurinn sem hlutirnir gerast...... ;). Segi ekki meir, ætla að leyfa Dísu að eiga þessa sögu í næstu samkundu, hún á eftir að segja hana miklu betur en ég.
Bless í bili
föstudagur, júlí 18, 2003
HA???? Ég var nú bara að djóka með lokunina!! En það er gott að vita að það séu fyrirtæki í því bæjarfélagi sem ég vinn í sem leyfa starfsmönnum sínum að leika sér í sólinni...
sælinú
Vorum að hugsa um það hér á stofunni að loka vegna veðurs, vitiði um einhver fordæmi fyrir því??
Sælir vinir
Það var sko ekkert "leiðinlegt" að þurfa að vera á Nesjavöllum frá 8-4 í gær að mæla. Ég er að tala um besta veður sem ég hef á ævi minni lent í ;O)
Bara svona fyrir ykkur sem sitjið inni allan daginn................. hí hí
Held að veðrið ætli að verða alveg eins í dag og ég er rokin á Eyrarbakka í stóóóra mælingu !!!
Tjá....
fimmtudagur, júlí 17, 2003
Það er nú gott að þið sem eruð að vinna úti njótið veðurblíðunnar, eða eruð kannski í fríi :) Hugsiði bara um mig sitjandi við tölvuna inni en ég er að fara út til Danmerkur á mánudaginn í geggjað veður svo það bætir það aðeins upp, þaggi. En það strax kominn fimmtudagur og hvað ætlar fólk að gera um helgina, á að skella sér e-ð út úr bænum?? Ég er að hugsa um að gera ekkert voðalega mikið er reyndar að fara í afmæli á laugardaginn hjá Steinunni þjálfara, en ætla mér að ganga hægt um gleðinnar dyr en vera þó hress.
miðvikudagur, júlí 16, 2003
Jæja ! var að koma núna af Reykjanesbrautinni, er búin að vera þar síðan kl. 9 í morgun í sólbaði (eftirliti) og ég er steikt !!!! Það er nú óskandi að það verði svona gott alveg þangað til sumarprófin eru búin svo maður læri nú örugglega ekki neitt c";)
Vá ég vissi ekki að við byggjum á sólarströnd. Það er næstum búið að vera ólíft úti í garði hjá mér í dag. En ég er ekki að kvarta, vil meiri sól og hita:)
Freknustelpan
Það var alveg ömurlegt að þurfa að labba göngustíginn frá Ægissíðu að Nauthólsvík og merkja staðsetningar götumerkinga, sérstaklega í þessu veðri. Bara svona að segja ykkur frá því ;o)
þriðjudagur, júlí 15, 2003
mánudagur, júlí 14, 2003
Sælar elsku dúllurnar mínar.
Við Doddi erum í óðaönn að taka okkur til fyrir gönguferðina ógurlegu sem hefst á miðvikudaginn. Búið að spá alveg massa veðri svo ég vona að regnfötin verði bara oní bakpoka. Komum heim á laugardaginn og svo er stefnt á massa tjútt á laugardagskvöldið því Þórdís systir kemur frá London á miðvikudaginn. Endilega látið mig vita ef þið stefnið líka á tjútt.....við skulum þá hittast og sameinast í tjúttinu.
Danni......ég er bara orðlaus.
Tjúttið lifi :o)
Danni hefur þú hugleitt að kaupa þér slysatryggingu??? nei bara spyr svona miðað við síðustu 3 vikurnar....
En ég og Óli komumst heil heim eftir frábæra helgi og það hljóp enginn á vegg, ótrúlegt en satt. Við fórum sem sagt á sveitaball á Hólmavík með hljómsveitinni Bikkebane. Þegar við komum á ballið þá drógu allir upp áfengið sitt og setti á borðið og byrjaði að blanda sér. Þetta var soldið skrítið fyrir borgarbörnin sem eru vön að þurfa að hella í sig áður en farið er á ball. En ég held að við höfum dansað af okkur rassgatið. En því miður þá þurfti slatta af þynnkumat daginn eftir svo að rassinn kom aftur:( En nú er bara að koma sér í lærigírinn, hægara sagt en gert. Það er ótrúlegt hvað maður þarf mikið að gera allt annað en að læra svona þegar maður ætlar að læra, eins og til dæmis að hanga á netinu. Best að hætta og fara að læra.........
Hellúúúúúú..........
Við Kristján + börn skemmtum okkur konunglega á Úlfljótsvatni um helgina þrátt fyrir grenjandi rigningu og VIÐBJÓÐSLEGA mikið mý!!! Þetta var fjölskylduferð á vegum Nýherja og brjáluð dagskrá allan tímann... vatnasafarí, kajakar, kanóar, bátsferð, klifur, sig, drullupollakeppni, hoppukastali, þrautahringur og ég veit ekki hvað og hvað.... algjört ævintýri fyrir litla sæta krakka eins og okkur ;O)
Svo var brenna + brekkusöngur á laugardagskvöldinu!
Maður er svona örlítið dasaður eftir þetta allt saman, en hvað voru þið kæru vinir að bralla um helgina???
P.s. Danni ég er farin að hafa smá áhyggjur af þér!!! Kannski ekki óeðlilegt eða........... ;O)
Svona ykkur að segja, þá fór ég á föstudag og lét réttingarverkstæði meta tjónið og pantaði tíma í dag. Það var frekar vandræðalegt að mæta í morgun með bílinn og aukabeygluna á hurðinni. En ég fæ þetta allt saman bætt og er kominn á bílaleigubíl.......
Gleymdi næstum að segja ykkur að það flaug fugl undir bílinn minn á föstudagskvöldinu, milli Akureyrar og Húsavíkur, hvíli hann í friði.
Ég tapaði líka golfmótinu ásamt öðrum gaur, þannig að ég fékk verðlaun (arfavafinn, brotin gólfkylfa) og titilinn, "besta nýting á vellinum".
sunnudagur, júlí 13, 2003
Jæja krakkar !!!! Ég er ekki að djóka þegar ég segi að það var keyrt aftur á Danna á föstudagskvöldið....... Var að tala við Kristrúnu í gær og hún sagði mér að það bakkaði einhver inn í hliðina á nýja bílnum hans Danna á Húsavík á föstudagskvöldið !!!!! Talandi um þriðja skiptið á þremur vikum. Held við ættum að gefa Danna GRÆNA KORTIÐ......
Sorrý Danni að ég var á undan þér að tilkynna beygluna en mér finnst þetta bara ansi merkilegt c",)
föstudagur, júlí 11, 2003
Halló halló
ég er loksins komin í frí eftir að hafa unnið 9 vaktir á einni viku. Það er greinilegt að þið skemmtuð ykkur öll vel á Skógum. En annars er planið fyrir helgina að ég og Óli ætlum að fara til Hólmavíkur á morgun á sveitaball. Vonandi verður gaman þarna á hjara veraldar en segi ykkkur frá því eftir helgi hvernig sveitafólkið skemmtir sér.
Góða helgi öll..........
Hér með boða ég innkomu mína í þessa fögru bloggfjölskyldu. Megum við dafna og blómstra um ókomin ár.
Í guðs friði.
Þór.
fimmtudagur, júlí 10, 2003
Jebb, ég er að fara á golfmót Hönnunar á Húsavík, með Bigga og Gumma (voru á 2. og 3. í vélinni). Ætlum að leggja af stað um 18, þ.a. við verðum komnir frekar seint á Húsvík, en það á að taka aðeins á því svo að við verðum hressir fyrir golfið klukka 11 á laugardeginum og grillið og ölið um kvöldið.
Góða helgi allir saman.
Ég er sko aldeilis að fara að tjútta.....
Við (ég+Steinar, Hanna+Jói, Karen+Ottó og Guffa+Björn) erum að fara að hittast heima hjá Hönnu annað kvöld í kínamat. Veit ekki hvort það verði heavy djamm á fólkinu......
Á laugardaginn á mamma afmæli og við ætlum í göngutúr í tilefni dagsins (5 tíma skrúðgöngu í kringum Hítarvatn) og um kvöldið ætlar Ester að hafa stelpupartý!!!
Nóg hægt að djamma og ég sem ætlaði að reyna að byrja að læra c".)
Héddna Katrín nenniru að fara í template-ið og breyta aðeins. Fara í kóðann á milli
Ásdís Sveins vesenispía ;o)
Plön fyrir helgina segirðu, tjah mig langaði nú að tjútta aðeins á morgun. Er einhver að fara að tjútta?
Gúten tag alles sammen. Er fólk með e-r plön fyrir helgina, skreppa kannski út úr bænum, eða?? Ég er enn að jafna mig eftir síðustu helgi, sem var frábær og ætla því bara að vera í leti um næstu helgi :)
miðvikudagur, júlí 09, 2003
Hí hí ............. eins og þið sjáið þá er Kristján æstur að fá að vera meðlimur bloggsins okkar ;O)
Katrín - emailið hans er eldjarn@nyherji.is
hæ, þetta er Kristján og mér er ekki þvingað af eiginkonunni til að skrifa þetta BLOG. Í dag fékk ég GordoBlu í hádeginu og svo eldaði ég Ameríska eggjaköku handa mér og Silju. Mér finnst gaman. Endilega skrifiði.
þriðjudagur, júlí 08, 2003
Sælir vinir mínir og takk kærlega fyrir síðast.
Til hamingju með nýja áreksturinn Danni, megir þú njóta hans vel og lengi.
Reyndi að byrja í dag á stærðfræðigreiningunni en ekki fór betur en svo að ég fékk alveg svakalega í magann í kafla 8.1. Kannski ég sé barasta með ofnæmi. Ætli ég geti fengið vottorð frá JIM?
Eruði annars byrjaðar stelpur?
Hérna Dodda langar að vera með á blogginu, er ekki hægt að redda því Katrín. Netfangið hans er doddidoddi@hotmail.com
Ég vil enda á að lýsa yfir ánægju minni með þessar hressleikastelpur. Aaaaah, ekkert jafnast á við góðan hressleika.......eða jafnvel flipp
p.s. nenniði að sýna mér mynd af þeim, ég er svo ógislega forvitin
Var að grennslast fyrir um fótboltavinkonu mína...
Samspilarar hennar segja að hún hafi ekki mjög mikið á milli eyrnanna, notar meira nýrun. Að hennar sögn þá fær hún ekki frið fyrir strákunum í verkfræðinni. Hún segir víst ekki mikið á æfingum en í fyrsta partíinu með meðspilurunum þá sagði hún orðrétt, svona til að brjóta ísinn "Ég hef bara sofið hjá 12 strákum, og það er ekki mikið, en þið" og svo hélt hún víst áfram að kenna þeim hvernig þær fengju fullnægingu...
ERTU EKKI AÐ GRÍNAST !!!!!!! Þessi gaur hefur sko ekki fengið ökuskírteinið sitt í Cheerios pakka heldur fengið það lánað hjá einhverjum sem stal því frá þeim sem fékk það úr Cheerios pakkanum........
Ég veit að þið trúið ekki því sem þið eruð um það bil að fara að lesa, en þetta er alveg satt því að sumt helv. fólk getur verið svo ótrúlega takmarkað. Ég var að keyra í gær á nýja bílnum mínum, (hinn var kökukeyrður fyrir 2 vikum, muniði), var að keyra eftir götunni sem bílaleiga Akureyrar og BT eru í (hjá Skeifunni), ásamt föður mínu þegar bíllinn á undan mér snarhemlaði og byrjaði að bakka og viti menn, beint framan á nýja bílinn minn og beyglaði nýsprautaða húddið og stuðarann ásamt því að brjóta vinstra framljósið. Gaurinn var í bílaleigubíl á leiðinni á bílaleigunna og fattaði allt í einu að hann var kominn of langt, þannig að hann áleit sem svo að það skynsamlega í stöðunni væri að nauðhemla og bakka án þess að líta afturfyrir sig, bjáni. Hefur örugglega fengið skírteinið í Cheerios pakka.
En það jákvæða er að allir sluppu ómeiddir og ég í 100% rétti.
mánudagur, júlí 07, 2003
Ha ha ha!!! Gerið bara grín að mér þið þarna hvíta vestræna fólk :( Maður má nú sleppa sér aðeins stundum... sérstaklega þegar maður er fullur.... og ausa út öllu því sem maður hefur verið að svekkja sig á síðustu vikur. Farið bara á myndina Tricky life og þið skiljið hvað ég meina ;o)
Takk sömuleiðis fyrir helgina, þetta heppnaðist mjög vel......
kv. Katrín (sem er aðeins til fyrir tilvist hvítra vestrænna karlmanna!!!)
Vildi bara þakka ykkur fyrir frábæra helgi, þetta var frábært.
Kveðja, vestræni hvíti karlmaðurinn!!!
Hae
Vona tid skemmtud ykkur a Skogum!
Silja, eg maeli med TI-89, tad er sa sem eg a og Asdis a hann lika. Held thetta se sa fullkomnasti.
laugardagur, júlí 05, 2003
föstudagur, júlí 04, 2003
Mér líst vel á þetta hjá þér Silja, við gleymum þér ekki.
Ég held að Ásdís eigi T89, en er ekki viss. Hún hefur sennilega tekið hann með sér í vinnuferðina því ég finn hann ekki hérna heima. En allavega.....
Nú bíð ég bara eftir að Hlínsa og the gang segi GO.
Hæ kids........
Eruði til í að hringja bara í mig þegar þið eruð alveg að verða komin á Selfoss, þá bruna ég!!!
En hvar viljiði eta..... KFC, Pulsuvagninn, Steikhúsið, Hrói Höttur, '67 ????
Er ekki flestir að vinna til ca 5, haldiði að þið verðið þá ekki á Selfossi um kvöldmatarleytið (7-8) - eða hvað, kannski fyrr???
Annars hlakka ég ýkt til að sjá ykkur, bíð spennt ;O)
Ég þekki ekki númerin á Texas, hef ekkert skoðað þá ennþá.
Við Strúna erum til í mat á Selfossi. Klukkan hvað höfðuð þið hugsað ykkur að vera þar?
Texas Instruments...........
Ein spurning til Danna skanna - ætlar þú að kaupa þér Texas Instruments (TI-89)??? Er að spá í hvort það sé ekki örugglega týpan sem ég á að láta Kristján kaupa fyrir mig út á Spáni!
Ásdís er þinn ekki TI-89?
Kveðja - Silja Hrund vasareiknivélaóða
fimmtudagur, júlí 03, 2003
Góða skemmtun!!!
Ég vona að þið skemmtið ykkur öll vel um helgina. Munið bara að taka nóg af myndum svo að ég geti skoðað næst þegar ég sé ykkur.
Bæjó......
Góðan daginn, Hín tókst bara loksins að vera með í þessu bloggi. Ég er rosa spennt fyrir helgini, verður ekki svaka stuð, þaggi. Allir til í ,,dinner" á Selfossi??
En hvenær ætliði að mæta......???
Ég verð fyrir austan og væri svo til í að vera í samfloti við ykkur, spurning um að hittast á Selfossi á einhverjum ákveðnum tíma og fá okkur að borða saman og sleppa við að grilla á föstudagskvöldinu!!!
Pæling............!!!
Sorry Katylæn, búinn að kaupa miða, en ég og Kristrún leggjum af stað um sex, þ.e. strax eftir vinnu.
Ég myndi og ætla að fá mér Texas Istruments, ekki spurning.
Ætlar fólk að grilla sér kvöldmat á föstudeginum??? pæling
OMG
Vasareiknirinn minn dó........... uhuuhhuuu ;O(
Ætla að reyna að láta Kris kaupa fyrir mig grafískan út á Barcelona eða í fríhöfninni.
Hvernig finnst ykkur að ég ætti að kaupa, var að spá í Texas Instruments!!! Er samt svo ekki að meika að fara að læra á nýjan, minn var svoooo góður og ég er búin að eiga hann svoooo lengi ;O(
Plís - hjálpiði mér.
Ein í vanda !!!
Já þú skildir rétt Silja mín, Skvísan mætir. Ég get mætt hvenær sem er um daginn. Spurningin er bara hvenær hitt skemmtilega fólkið ætlar að láta sjá sig. Pælingin hjá mér er að mæta hress, tjalda og móka eitthvað fram eftir degi án þess þó að snerta á bjórlagernum því ég þarf að pikka Skvísuna upp á Selfossi þegar hún hefur lokið öllum sínum mælingum af.
Endilega komið í kvöld að kaupa miða á Skóga (síðasta miðasölukvöldið) því ég er í miðasölunni og ætla að vera ýkt skemmtileg!!
Bæ ðe vei Steinar þarf ekki að fá far með neinum því hann kemst með mér!!!!
Reikningsnúmerið á TMC reikningnum er 0545-14-604070 og kt. mín er 140381-3229. Svo ef þið viljið leggja styrki þá er mitt reikningsnúmer ...
miðvikudagur, júlí 02, 2003
SKÓGAR............
Ég er orðin ýkt spennt fyrir næstu helgi. Hvenær eruði að pæla í að mæta á svæðið???
Eitt vandamál - Ríkey mætir ekki og hvað þá með TWISTERINN...!!!
Skildi ég Stebbalíus rétt.......... ætlar Dísa Skvísa að mæta?
Það er óvíst á hvaða bíl ég og Kristrún förum á, vegna slyssins, verð jafnvel á bílaleigubíl svo að það er örugglega pláss fyrir einn til tvo með okkur, við erum ekki eins leiðinleig og við lítum út fyrir að vera : (
Það er spurning hvort Steinar fái far með einhverjum ef hann getur ekki farið fyrr úr vinnunni??? Ég fer nebbla upp úr hádegi.... c",)
Það er búið að stofna reikning fyrir TMC, hann er á mínu nafni í Íslandsbanka. Ég man ekki númerið, en mun setja það á síðuna um leið og ég get. Góða ferð og gangi þér vel í Grikklandi.
Ég og Stúna tjölduðum hústjaldinu í gær, þetta er ekki alveg risa fortjald, en það er nokkuð stórt, passar fyrir borð og nokkra stóla, hentar vel því að spáin er ekki góð, hvað er svosum að marka hana???
Hæ, hæ,
Úff, loksins tókst mér að redda þessu bloggi. Mar er ekki alveg inn i þessum blogger málum :).
En allavega þá er ég að deyja úr spenningi fyrir helginni og hef sett mér það markmið að vinna upp bjórþurrk júnimánaðar á einu bretti. En annars almennt um helgina. Er fólk eikkað byrjað að plana? Hvenær býst fólk við að vera mætt? Er plan að samnýta einhverja bíla, eða? Ég fer allavega á bíl því ég þarf að sækja Dísu á Selfoss, hún er í vinnuferð. Einhverjar pælingar????
Kveðja, einn ÞYRSTUR og til í tuskið....
HEIHEIHEI!!!! Þið þurfið að tryggja ykkur miða á Skóga sem fyrst því það var metsala í gær...... kannski það verði uppselt!
Við seldum 70 miða í gær en í fyrra voru seldir 6 miðar á fyrsta degi!! Það stefnir í metþátttöku....
þriðjudagur, júlí 01, 2003
Skil ekki af hverju íslensku stafirnir virka hér en ekki á öðrum bloggsíðum??? Hver er galdurinn K?
Ok, ég öfunda ykkur yfir að ætla að stinga af á Skóga en ég skal hugsa til ykkar í blautu tjaldinu þegar ég ber á mig sólarvörnina í Grikklandi.... hehe. Góða skemmtun samt.
Kristrún, hvað er að frétta af bankareikningnum okkar? Viltu að ég stofni hann bara eða drífur þú í því fljótlega?
Ef makar ykkar vilja vera með á blogginu þá er það allt í fína! Hef nú þegar gefið einum maka (þó ekki mínum eigin) aðgang að blogginu!!
Það eina sem þið þurfið að gera er að senda mér e-mail adressuna þeirra og ég sendi þeim til baka invitation í bloggið......
