NYC plönJæja nú þarf að kýla á'edda! Við heimalingar vorum á því að við myndum fara út 19. september og svo myndi fólk vera í viku, 10 daga eða bara sem því sýnist. Ég tékkaði áðan á flugi og þetta er í kringum 50 þúsund kallinn.
Eníhú, ég fjárfesti í forlátri Lonely Planet NYC bók sem er ansi solid þegar kemur að finna góða en ódýra gistingu. Ég valdi fjóra gististaði sem mér leist best á, en þeir eru allir nokkuð vel staðsettir á Manhattan. Persónulega er ég heitastur fyrir fyrsta kostinum en endilega kommentið og segið hvað ykkur líst best á.
Amerískt kósýkrútt bedd og brekkfast og á mjög fínum díl í Chelsea hverfinu. Ca $60 á mann (2 í herbergi) fyrir nóttina. Sturta og vaskur á herbergjum.
Soldið hipp og soldið cheap B&B. Það eru 2 herbergi um hvert bað. Staðsett í Flatiron hverfinu. $50-75+skattar á mann fyrir nóttina m.v. 2 í herb.
Huggó cheap sleep en ekki m. klósettum á herbergjunum. Staðsett í miðju Greenwich Village. $55-65 f. nóttina m.v. 2 í herb.
Beisikk budget hótel nálægt East Village hverfinu. Madonna gisti þar einu sinni þannig að við yrðum í fótsporum megamegapoppstjörnu. Fjúff. $80-90 á mann fyrir nóttina og sami díll og í Chelsea Lodge.
Tjékkit. Svo er mál að fara að panta þetta stöff, bæði upp á verð á flugi og svo að besta gistingin verði laus.