Sæl verið þið
Við Siggi æltum að halda partý þann 1. apríl eða næstkomandi Laugardag. Þetta á semsagt að vera innflutningspartý, 25. ára afmæli sem og útskriftarteiti allt í einum paka. Við viljum því bjóða ykkur hér með að kíkja í heimsókn og sletta ærlega úr klaufunum með okkur.
Mæting er eftir klukkan 9 í Gnitaheiði 4, 200 kópavogur. Endilega kommentið þið hérna og látið okkur vita hvort þið hafið tíma og nennu til að kíkja við og skála í bjór.
Við vonumst til að sjá sem flesta en gerum okkur þó grein fyrir að fólk er ekki að fara að kaupa flugmiða til þess að mæta!!
Kveðja frá sveitalubbunum
