þriðjudagur, október 25, 2005

Hello kids

Eg vil bara gera svona sma post um ad vid seum a lifi thvi vid hofum ekki drullast til ad skrifa neitt her inn.
Vid erum ad njota okkar i botn i ferdinni og eg sting eindregid upp a thvi ad einhver TMC medlimur studeri i Argentinu thvi thetta er frabaert land og THEGAR vid forum saman i ferdalag til landa sem vid hofum studerad i tha verdur Argentina gedveikt toff ;-).

Hlakka til ad hitta ykkur oll.

Kvedja
Siggi og Jonina



föstudagur, október 21, 2005

Heil og sæl öll!

LOKSINS! LOKSINS! LOKSINS! er dúkkúhúsið orðið nettengt. Ég var alveg við það að verða geðveikur á þessu sambandsleysi. Að öðru leyti allt fínt að frétta, er í prófum núna og svo byrjar næsta period um miðja næstu viku. Nú gæti ég byrjað á pistli þar sem ég segði allt sem hefur gert síðastliðinn einn og hálfan mánuð en ég nenni því ekki og ætla í staðinn að punkta niður nokkur orð sem hefðu hugsanlega getað komið fyrir í honum:
  • Gott veður
  • félagi Hrannar
  • Ikea
  • Dúkkuhús
  • Kúrsavitleysa, skeit á mig og var of seinn að skrá mig í sænsku.
  • Onsdagspöbb
  • Íslendingabandý
  • V-hálsmál
  • Fokkings Vodafone!
  • Wirströms á þriðjudögum
  • Góðar samgöngur
  • Ikea
  • Vesen að vera ekki með netið heima.
  • Epla-cider af krana!
  • Bleikur og frú í heimsókn
  • Dádýr
  • Matarklúbburinn Jötunn
  • Ferðatölvan dó
  • Svíþjóð - Ísland snilld!
  • Próf
Eigum við ekki að láta þetta duga. Ef einhver óskar sérstakra útskýringa á einhverjum orðum eða setningum þá verður það tekið til umhugsunar. En eitt að lokum, ég held að Svíþjóð hljóti að vera eina landið þar sem maður getur átt von á því að sjá aðalfréttakonu aðalfréttatíma sjónvarpsins með tíkarspena. Finnst mér það bara fyndið?



mánudagur, október 10, 2005

ég veit ekki með ykkur en ég legg til hitting á sunnudaginn...



fimmtudagur, október 06, 2005

Ætlar einhver að kíkja á Októberfest? Bara svona ef það hefði farið fram hjá ykkur en þá verður haldið Októberfest í risatjaldi fyrir framan HÍ. Það byrjar í dag en ég held að aðalfjörið verði á morgun, því þá ætla ég að vera þar muahahahahhhaaaa......... en endilega verið í bandi ef þið ætlið að kíkja.
PROST (=Skál)