Hej allihopa!!!
Mig langaði bara að tilkynna að ég er loksins búinn að henda inn nokkrum albúmum á myndasíðuna. Svo koma vonandi fleiri bráðlega ef ég nenni að flokka restina. Annars er allt fallbyssugott að frétta, 2. periodið er að komast í gang og kúrsarnir (
1,
2,
3) alveg ómótstæðilega spennandi. :) Svo byrja ég loksins á sænskunámskeiði á mánudag þannig að það verður nóg að gera.
Svo vil ég bara benda á að ef einhvern langar að kíkja til Stokkhólms að þá stendur gisting í dúkkuhúsinu til boða. Það er hægt að fá mjög ódýr flug núna þannig að helgarferð þarf ekki að kosta mikið. Pæling!!
cya!