Sæl verið þið
Nú er komið að því...
Hið árlega PAJAMAS er í kvöld og við vonum að fólk sé búið að hita upp og strauja náttfötin. Mæting er í Gnitaheiði 4, eftir kvöldmat eða eftir um klukkan 9, þar sem hesturinn kellan og tíkin taka á móti ykkur opnum örmum.
Dagskrá kvöldsins:
Mæta, kjafta, drekka, hlæja, slúðra, snarla, spila, fara í pottinn, kveikja upp í arninum, kjafta, drekka, hlæja og sofa....
:)
Gott væri fyrir okkur Sigga að vita hverjir hafa hugsað sér að sofa, svo við getum verið búin að gera viðeigandi ráðstafanir svo sem finna dýnur.
Annars hlakkar okkur ofsalega mikið til að sjá ykkur í kvöld, Ríkey er búin að lofa mér að gera hinar árlegu skonsur í fyrramálið og við Siggi skokkum í bakaríið fyrir klukkan 8:00 um leið og við förum í hesthúsið og skjótumst aðeins austur fyrir fjall.
Þangað til á eftir, yfir og út...

